Öll þjónusta
API tengingar
Kerfin þín í einu samtali
Tvískráning gagna milli kerfa er tímasóun og uppspretta villna. Við tengjum kerfin þín saman svo gögn flæði sjálfkrafa — pantanir í bókhaldið, viðskiptavinir í CRM, birgðastaða í vefverslunina.
Við höfum reynslu af íslenskum og alþjóðlegum kerfum: DK, Payday, regla, Business Central, Shopify, Salesforce og fleirum — og smíðum eigin API þegar kerfi bjóða ekki upp á tilbúnar tengingar.
Allar tengingar eru vaktaðar og með villumeðhöndlun svo þú fréttir af vandamálum frá okkur, ekki frá viðskiptavinum.
Innifalið í þjónustunni
- REST og GraphQL samþættingar
- Tengingar við bókhalds- og launakerfi
- Rauntíma gagnaflæði og webhooks
- Vöktun og villumeðhöndlun tenginga