Öll þjónusta
Microsoft 365
Full nýting á M365 umhverfinu
Flest fyrirtæki nota aðeins brot af því sem Microsoft 365 býður upp á — og enn fleiri eru með öryggisstillingar sem standast ekki nútímakröfur. Við lögum hvort tveggja.
Við sjáum um flutning úr eldri kerfum, setjum upp öryggislög eins og MFA og Conditional Access og skipuleggjum Teams og SharePoint svo skjalavinnan verði einföld og skilvirk.
Reglulegar úttektir á leyfum og notkun tryggja að þú borgir aðeins fyrir það sem þú notar.
Innifalið í þjónustunni
- Uppsetning og flutningur í M365
- Öryggisstillingar og Conditional Access
- Teams, SharePoint og Exchange ráðgjöf
- Leyfisstjórnun og kostnaðarhagræðing