Öll þjónusta
UT rekstur
Heildarrekstur upplýsingatækni
UT rekstur hjá Prod snýst um fyrirsjáanleika. Við vöktum kerfin þín allan sólarhringinn, grípum inn í áður en vandamál verða að rekstrarstöðvun og höldum búnaði og hugbúnaði alltaf uppfærðum og öruggum.
Þjónustuborðið okkar svarar notendum hratt og á mannamáli. Öll mál eru skráð, mæld og fylgt eftir — og þú færð reglulegar skýrslur um stöðu umhverfisins, svartíma og þróun.
Hvort sem þú vilt útvista öllum rekstri eða styrkja núverandi tækniteymi þá sníðum við þjónustuna að þínum þörfum.
Innifalið í þjónustunni
- Fyrirbyggjandi vöktun 24/7
- Notendaþjónusta og þjónustuborð
- Uppfærslur og líftímastjórnun búnaðar
- Mánaðarlegar skýrslur og þjónustufundir