Prod ehf
Öll þjónusta

Sjálfvirkniferlar

Láttu kerfin vinna vinnuna

Endurtekin handavinna er dýr, hægvirk og villugjörn. Við kortleggjum ferlana þína, finnum tækifærin og smíðum sjálfvirkni sem sparar tíma frá fyrsta degi.

Dæmigerð verkefni: sjálfvirk skráning reikninga, samstilling gagna milli kerfa, tilkynningaflæði, onboarding nýrra starfsmanna og sjálfvirkar skýrslur.

Við notum þau tól sem passa umhverfinu þínu — Power Automate, Logic Apps, Azure Functions eða sérsmíðaðar lausnir.

Innifalið í þjónustunni

  • Power Automate og Logic Apps
  • Sjálfvirk gagnaflutningskerfi
  • Skjalaferlar og samþykktarferlar
  • RPA og skriftuþróun