Allar lausnir
Hvar er?
VefkerfiViðverutafla fyrir vinnustaði
„Er Anna við?“ — spurningin sem móttökur og skiptiborð svara tugum sinnum á dag, oftast með því að hringja, ganga um eða giska. Hvar er? svarar henni á einum skjá: staða hvers starfsmanns í rauntíma.
Starfsfólk uppfærir stöðuna sína á sekúndu í símanum eða tölvunni — eða lætur kerfið gera það sjálfkrafa út frá Microsoft 365 dagatalinu. Fundur í dagatalinu birtist sjálfkrafa sem „á fundi“ á töflunni.
Kerfið hentar öllum vinnustöðum þar sem fólk þarf að vita hvert af öðru: skrifstofum, stofnunum, verkstæðum og þjónustufyrirtækjum. Íslenskt viðmót, einföld uppsetning og þjónusta frá Prod.
Helstu eiginleikar
- Rauntímayfirlit: inni, úti, fundur, frí, veikindi
- Tenging við Microsoft 365 dagatöl
- Skjáyfirlit fyrir móttöku og skiptiborð
- Starfsfólk uppfærir stöðu í símanum
- Leit og deildaskipting fyrir stærri vinnustaði