Prod ehf

Lagalegt

Persónuverndarstefna

Prod ehf. tekur persónuvernd alvarlega og tryggir ábyrga meðferð allra persónuupplýsinga. Í þessari stefnu útskýrum við hvernig við vinnum með persónuupplýsingar sem safnast í gegnum vefsíðu okkar og þjónustur sem við notum.

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við?

Prod ehf. safnar aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu og stuðning við viðskiptavini. Dæmi um slíkar upplýsingar:

  • Nafn, kennitölu og tengiliðaupplýsingar (netfang, símanúmer).
  • Samskiptagögn í gegnum spjallkerfi, tölvupóst og hafa-samband form á vefnum.
  • Pöntunargögn úr vefverslun: nafn, netfang, símanúmer og afhendingarstaður.
  • Upplýsingar um tæknilega aðstoð og bilanatilkynningar í beiðnakerfi.
  • IP-tölur og tæknilegar upplýsingar vegna öryggis og bilanagreiningar.
  • Upplýsingar um tæknilegan búnað, hugbúnað, stöðu og notkun búnaðar sem safnað er í gegnum fjarvöktunar- og kerfisstjórnunarkerfi (RMM) (á eingöngu við um viðskiptavini með samning um slíka þjónustu).

Þjónustur sem við notum og tilgangur gagnavinnslu

Microsoft 365 og Azure

Prod ehf. notar Microsoft 365 og Azure skýjalausnir til tölvupóstsamskipta, skjalavistunar og tæknilegs reksturs. Innskráning starfsfólks í stjórnborð vefsins fer einnig fram með Microsoft (Entra ID) auðkenningu. Upplýsingar geymdar í þessum kerfum eru varðar með ströngum öryggisráðstöfunum Microsoft samkvæmt stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi Prod ehf.

Vefsíða og vefverslun (prod.is)

Vefsíðan prod.is er hýst á netþjóni hjá Euronodes. Pantanir, greinar, vörur og skilaboð úr hafa-samband forminu eru vistuð í gagnagrunni sem er eingöngu aðgengilegur starfsfólki Prod í stjórnborði vefsins, varið með innskráningu. Karfa vefverslunar er vistuð staðbundið í vafra hvers notanda (localStorage) og fer aldrei á netþjón fyrr en pöntun er staðfest.

SuperOps (hjalp.prod.is)

Við notum SuperOps til tæknilegrar þjónustustýringar, miðlægrar skráningar beiðna og samskipta við notendur. Við notum einnig SuperOps fyrir fjarvöktun og kerfisstjórnun (RMM) til að fylgjast með tæknilegri stöðu búnaðar viðskiptavina okkar með þjónustusamning, framkvæma viðhald og tryggja öryggi og stöðugleika kerfa. Í gegnum SuperOps nýtum við einnig Splashtop sem innbyggða virkni til að veita örugga fjartengingu og fjarþjónustu. Gögn sem þar vistast eru eingöngu nýtt í þjónustu- og tæknilegum tilgangi.

Crisp Chat

Við notum Crisp Chat til að veita rauntíma þjónustu og stuðning á vefsíðu okkar. Crisp safnar upplýsingum sem þú slærð inn í spjallglugga, ásamt IP-tölu og tæknilegum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustuna.

Hvernig notum við upplýsingarnar?

Við notum persónuupplýsingar eingöngu til að:

  • Veita þá þjónustu sem þú óskar eftir.
  • Afgreiða pantanir úr vefverslun.
  • Veita tæknilegan stuðning og leysa úr beiðnum.
  • Bæta þjónustu okkar og öryggi kerfa.
  • Uppfylla lagalegar skyldur eða skilmála samninga.

Miðlun til þriðja aðila

Prod ehf. selur aldrei persónuupplýsingar til þriðja aðila. Upplýsingar kunna þó að vera geymdar hjá þjónustuaðilum okkar (Microsoft, SuperOps.ai, Crisp.chat, Euronodes), en aðeins samkvæmt skýrum gagnavinnslusamningum sem tryggja persónuvernd.

Varðveisla gagna

Við geymum persónuupplýsingar aðeins svo lengi sem þörf krefur til að veita þjónustu eða eins og lög krefjast.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum hefur þú rétt á að óska eftir aðgangi að upplýsingum þínum, leiðréttingu, takmörkun vinnslu eða eyðingu upplýsinga sem við höfum um þig. Þú getur sent slíkar beiðnir á netfangið okkar sem birtist hér neðar.

Hafa samband

Prod ehf.
Elvar Hrafn Aðalgeirsson
personuvernd@prod.is
547 6000


Þessi persónuverndarstefna var síðast uppfærð 28.4.2025 og þarf að vera samþykkt af stjórn Prod ehf. að nýju í kjölfar uppfærðra upplýsinga um hýsingu og vefverslun.