Prod ehf
Allar lausnir

Lyklakippan

Vefkerfi

Utanumhald um lykla, aðgangskort og útlán

Flest fyrirtæki vita ekki með vissu hver er með hvaða lykla — fyrr en einhver hættir og enginn veit hvað hann var með. Lyklakippan leysir það: hver einasti lykill, aðgangskort og fjarstýring er skráð, og hvert útlán tengt manneskju með dagsetningu og kvittun.

Þegar starfsmaður hættir sést á einum stað hverju hann á eftir að skila. Við úttektir — til dæmis vegna öryggisvottana eða trygginga — er sagan öll til: hver fékk hvað, hvenær og hver samþykkti.

Lyklakippan er íslenskt vefkerfi, einfalt í notkun og hýst og þjónustað af Prod. Það hentar fyrirtækjum, húsfélögum, fasteignafélögum og öllum sem afhenda lykla og þurfa að vita hvar þeir eru.

Helstu eiginleikar

  • Skráning lykla, aðgangskorta og annarra verðmæta
  • Útlán og skil með rafrænni kvittun
  • Ábyrgð tengd starfsmanni eða verktaka
  • Full saga: hver fékk hvað og hvenær
  • Áminningar um óskiluð útlán