Prod ehf
Allar lausnir

Merkisdagar

SharePoint viðbót

SharePoint-viðbót fyrir afmæli og starfsafmæli

Litlu hlutirnir búa til vinnustaðarmenningu — og fátt er einfaldara en að muna eftir afmælum. Merkisdagar birtir afmæli og starfsafmæli starfsfólks sjálfkrafa á SharePoint innri vefnum, án þess að nokkur þurfi að viðhalda lista.

Viðbótin sækir upplýsingar í Microsoft 365 og birtir þær í snyrtilegum vefhluta sem fellur inn í útlit innri vefsins. Starfsfólk sem vill ekki birtingu getur afþakkað hana — persónuvernd er sjálfgefin.

Merkisdagar keyrir alfarið inni í ykkar eigin Microsoft 365 umhverfi, engin gögn fara út fyrir það. Uppsetning tekur innan við klukkustund og Prod sér um hana.

Helstu eiginleikar

  • Afmæli og starfsafmæli birt sjálfkrafa
  • Fellur inn í SharePoint innri vefinn
  • Gögn sótt í Microsoft 365 / Entra ID
  • Starfsfólk getur afþakkað birtingu
  • Engin sérhýsing — keyrir í ykkar M365